Góður árangur á Jónsmóti

Galvaskir skíðakrakkar úr skíðadeild Tindastóls fóru til Dalvíkur um síðustu helgi en þar var haldið hið árlega Jónsmót sem haldið er til minningar um Jón Bjarnason, sem var einn af stofnendum félagsins. Keppnin var að hluta til með óhefðbundnu sniði þar sem keppt var í stórsvigi og 25 metra bringusundi.

Alltaf gaman á Jónsmóti. Mynd: Helga Eyjólfsdóttir

Skíðamótið er fyrir krakka á aldrinum 9 – 13 ára og fóru alls þrettán krakkar frá Tindastóli. Að sögn Sigurðar Bjarna Rafnssonar formanns skíðadeildarinnar stóðu krakkarnir sig gríðarlega vel og unnu til fjölda verðlauna.

Hægt er að sjá úrslit HÉR

Fleiri fréttir