Góður árangur UMSS á Akureyrarmóti í frjálsíþróttum

Keppendur Ungmennasambands Skagafjarðar stóðu sig vel á Akureyrarmóti í frjálsíþróttum sem fram fór á frjálsíþróttavellinum við Hamar á Akureyri um síðustu helgina.  Veður var gott og keppendur margir, alls 149 skráðir til leiks, þar af 27 frá UMSS.

Á heimasíðu UMSS segir að Skagfirðingarnir hafi staðið  sig mjög vel á mótinu,unnu til margra verðlauna en UMSS sigraði stigakeppnina í aldursflokknum 12-13 ára.

Hér fyrir neðan má sjá þá sem lentu í verðlaunasætum frá UMSS:

  • 10-11 ára piltar
    Ari Óskar Víkingsson – Silfur í 60m og langstökki. Brons í 600m
    Dalmar Snær Marinósson – Brons í hásökki
    Ólafur Ísar Jóhannesson – Brons í kúluvarpi

    12-13 ára stúlkur
    Hafdís Lind Sigurjónsdóttir – Gull í 200m og langstökk. Silfur í 80m, 60m grind. Brons í spjótkasti
    Vala Rún Stefánsdóttir – Gull 60m grind, kúluvarpi og  spjótkasti
    Sigríður Vaka Víkingsdóttir – Brons í langstökki

    12-13 ára piltar
    Vésteinn Karl Vésteinsson Gull í 60m grind, spjótkast, langstökki og hástökki. Silfur í kúluvarpi, brons í 80m
    Ófeigur Númi Halldórsson – Brons í kúluvarpi
    Rúnar Ingi Stefánsson – Gull í kúluvarpi. Silfur í spjótkasti

    14-15 ára piltar
    Sveinbjörn Óli Svavarsson Silfur í 100m, 80m grind
    Hákon Ingi Stefánsson – Gull í kringlukasti. Brons í sleggjukasti
    Haukur Ingvi Marinósson – Silfur í kúluvarpi. Brons í Kringlukasti

    14-15ára stúlkur
    Fríða Ísabel Friðriksdóttir Gull í 200m,80m grind Silfur í 100m, þrístökki. Brons í hástökki, langstökki
    Ragna Vigdís Vésteinsdóttir – Gull í kringlukasti. Silfur í 80m grind og kringlukasti. Brons í sleggjukasti
    Hrafnhildur Gunnarsdóttir – Brons í 80m grind

    Karlar
    Jóhann Björn Sigurbjörnsson Brons í 100m
    Daníel Þórarinsson – Gull í 800m Silfur í 400m og stangarstökki Brons í 200m,

    Konur
    Þorgerður Bettína Friðriksdóttir – Brons í 200m, sleggjukasti og 400m

Margir aðrir náðu mjög góðum árangri.  Má þar nefna að Jóhann Björn Sigurbjörnsson bætti sinn fyrri árangur, þegar hann varð í 3. sæti í 100m hlaupi á mjög góðum tíma, 11,16 sek.  Hann hljóp reyndar á 11,13 sek í undanrásum, en þá var meðvindur aðeins yfir leyfilegum mörkum.  Þá bætti Daníel Þórarinsson árangur sinn vel í 400m hlaupi, þegar hann varð í 2. sæti á 52,03 sek..

Fleiri fréttir