Góður sigur á Fjölni í Lengju-bikarnum
Fjölnir heimsótti Tindastól í Síkið í kvöld og var viðureignin hluti af Lengju-bikarnum, sem líkt og í fyrra hefst með riðlakeppni. Auk Tindastóls og Fjölnis eru lið Stjörnunnar og Breiðabliks í riðlinum. Fjölnir höfðu byrjað vel í Dominos-deildinni en þeir urðu að sætta sig við tap í kvöld gegn spræku Tindastólsliði.
Leikurinn var jafn fram í miðjan fyrsta leikhluta en þá náðu Stólarnir að skella í lás í vörninni og gestirnir gerðu ekkert einasta stig síðustu sex mínútur fjórðungsins. Á meðan gerðu heimamenn 10 stig og staðan 18-7 þegar annar leikhluti hófst. Fjölnismenn náðu að hægja á Stólunum og kröfsuðu sig inn í leikinn aftur. Þeir jöfnuðu 25-25 þegar rúmar þrjár mínútur voru til hálfleiks en Þröstur Leó gerði næstu 4 stig og Helgi Rafn bætti við 6 stigum til viðbótar án þess að gestirnir næðu að svara. Staðan 37-29 í hálfleik.
Tindastóll hafði frumkvæðið áfram í þriðja leikhluta en um miðjan leikhlutann munaði fimm stigum, 45-40, en Þröstur Leó skilaði niður þristi í kjölfarið. Hart var barist og minnstur varð munurinn þrjú stig, 54-51, en þá dúkkaði Svabbi upp með þrist og staðan 57-51 að loknum þriðja fjórðungi. Hreinsi hermdi eftir bróðir sínum í upphafi fjórða leikhluta og kom Stólunum í 60-51 og eftir það voru gestirnir aldrei nálægt því að ná í skottið á heimamönnum sem juku við forystuna sem varð mest 15 stig. Lokatölur 79-66.
Fremstur í flokki hjá heimamönnum í kvöld var fyrirliðinn Helgi Rafn sem gerði 20 stig og hirti aum (!) 17 fráköst. Stólarnir fráköstuðu eins og vitlausir menn í kvöld, hirtu 55 i heildina, þar á meðal 23 sóknarfráköst, á meðan gestirnir tóku 36 alls. George Valentine gerði 15 stig og tók 15 fráköst og Þröstur Leó gerði 15 stig. Isaac Miles gerði 11 stig í kvöld en er ekki enn búinn að finna fjölina sína, hann náði ekki að setja eitt einasta 3ja skot niður þrátt fyrir að hafa reynt 7 sinnum. Hreinsi reyndi 8 sinnum við 3ja stiga skot og setti eitt niður þannig að eitthvað þurfa Stólarnir að fara að stilla miðið, 5 niður í 28 tilraunum hjá liðinu er ekkert til að hrópa húrra fyrir.
Aðalatriðið var að sigra í kvöld og ná sjálfstrausti í hópinn. En hvað er eiginlega með Svabba á vítalínunni?
Stig Tindastóls: Helgi Rafn 20, Þröstur Leó 15, George Valentine 15, Isaac Miles 11, Sigtryggur Arnar 6, Svavar Atli 5, Hreinn Gunnar 3, Helgi Freyr 2 og Friðrik 2.