Golfhermirinn kominn í gagnið

Golfhermirinn sem Golfklúbbur Sauðárkróks fjárfesti í á dögunum er kominn í gagnið og býðst félögum að spila 9 holur frítt fram á næstkomandi sunnudag, 6.janúar. Hermirinn er af gerðinni Double Eagle DE3000, eins og greint var frá í nóvember sl., og er hann sagður vera einn sá besti sem völ er á. 

„Í herminum er hægt að spila marga heimsþekkta golfvelli og er grafík eins og best verður á kosið. Einnig er afar mikilvægt að nútíma golfhermar gefa mjög raunhæfa mynd af sveiflu og raunverulegri getu. Þetta er því ekki bara tölvuleikur, heldur tæki til að bæta sig í golfi,“ segir á heimasíðu GSS.

Hægt er að skrá sig á blað sem hangir uppi í Borgarflöt 2. Að lágmarki skulu 3 spila saman í holli. Hægt er að hafa samband við eftirtalda til að komast í golfherminn: Muggur 891 6244, Kristján 894 5276, Guðmundur 893 5601, Pétur 863 6191 og Unnar 892 6640.

Fleiri fréttir