Golfmót í golfherminum
Golfklúbbur Sauðárkróks ætlar að halda golfmót í nýja golfherminum en samkvæmt heimasíðu GSS verða leiknar 18 holur á Beacon Ridge vellinum (í Eagle stroke). Mótið fer fram dagana 22.-24. febrúar 2013.
Gert er ráð fyrir að þrír leiki saman í einu og hvert holl hafi þrjá tíma til að leika 18 holur. Konur og öldungar leika af rauðum teigum en karlar af bláum. Hámarksfjöldi þátttakenda er 33.
Leikfyrirkomulag er höggleikur með forgjöf. Miðað er við grunnforgjöf leikmanns og hækkar aukastafur, 5 og hærra leikforgjöf upp í næstu heilu tölu en, 4 og lægra lækkar leikforgjöf niður í næstu heilu tölu.
Skráning mótið fer fram að Borgarflöt 2 eða hjá Muggi í síma 891-6244 og geta keppendur valið leiktíma miðað við það sem hér kemur á eftir:
- Föstudaginn 22. febrúar munu 4 holl spila, kl. 13, 16, 19 og 22.
- Laugardaginn 23. febrúar munu 5 holl spila, kl. 9, 12, 15, 18 og 21.
- Sunnudaginn 24. febrúar munu 2 holl spila, kl. 9 og 12.
Verðlaunaafhending verður í mótslok á sunnudeginum. Veitt verða ein veðlaun en styrktaraðili mótsins er Hlíðarkaup.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu GSS.