Göngum frestað í Staðarfjöllum
Ákveðið hefur verið að fresta göngum í Staðarfjöllum í vestanverðum Skagafirði um eina viku vegna ófærðar. Gengið var um síðustu helgi á þessu svæði og smalaðist nokkuð vel að sögn Elvars Einarssonar á Syðra-Skörðugili. Farið verður upp í Reykjarskarð og á brúnir og þær skepnur sem þar eru teknar með til byggða.
Að sögn Elvars verður farið um níuleytið í fyrramálið en alls óvíst hvenær réttarstörf hefjast ef einhverjar skepnur koma til byggða. Telja má víst að það verði ekki fyrr en eftir hádegi.