Götukörfubolti Go-Kart eða töfrar skemmtilegir lummudagar framundan
Dagskrá Lummudaga í Skagafirði um næstu helgi er að taka á sig mynd en Götukörfubolti, Go-Kart og námskeið hjá Einari Töframanni er meðal þess sem í boði verður um næstu helgi.
3 á 3 götukörfuboltamót verður haldið laugardaginn 25. júní kl. 11 við Árskóla Skagfirðingabraut. Aldursflokkarnir eru 12-16 ára og 17ára+. Spilað er upp í 11 stig eða í 10 mín. Þátttökugjald er 1500kr. og rennur ágóði mótsins til Ingva Guðmunds. Skráning er á helgirafn14@hotmail.com fyrir kl. 19 á föstudag
GO-KART Brautin mætir með bílana sína á Lummudaga. Verða þeir með aðstöðu hjá Kjarnanum. Opið verður föstudag frá kl. 18-22, laugardag og sunnudag kl.10-22. Verðskrá: 5.Mín 2.900 kr. 10.Mín 3.900 kr. Þú þarft að verða búin að ná 140cm til þess að fá að keyra.
Einar Töframaður verður á Lummudögum og mun hann halda námskeið í töfrabrögðum kl. 11-13 laugardaginn 25. júní í Húsi Frítímans. Þátttökugjald er 1000kr. Ekki þarf að skrá sig heldur bara mæta hress og kát og til í að töfra.