Grein í Evolution um samanburðarrannsóknir á hornsílum í Ameríku og á Íslandi
Grein um samanburðarrannsóknir á lögun stærsta beins í tálknloki hornsíla kom nýlega út í vísindaritinu Evolution en Bjarni K. Kristjánsson prófessor við Háskólann á Hólum er einn höfundur greinarinnar.
Samkvæmt niðurstöðum rannsóknanna verður áhugaverð breyting stærsta beini í tálknloki hornsíla þegar hornsíli nema land í ferskvatni og hefur það verið mikið skoðað í hornsílum í Alaska. Í greininni sést að þessi þróun á sér stað víðar, bæði í Norður-Ameríku og í íslenskum hornsílum, og því er líklegt að náttúrulegt val hafi leitt til þessarar þróunar.
„Til þess að meta það var erfðafræði þroskunar þessa beins metin með vaxtartilraunum á amerískum hornsílum, en niðurstöður þeirra bentu sterklega að aðlögun að ferskvatni velji fyrir þróun í genum sem stjórna útliti þessa beins,“ segir á heimasíðu Hólaskóla.
Höfundar greinarinnar eru Charles B. Kimmel, William A. Cresko, Parick C. Phillips, Bonnie Ullman (University of Oregon), Frank von Hippel, Ofer Gelmond (University of Alaska), Bjarni K. Kristjánsson (Háskólanum á Hólum) og Katrina McGuigan (The University of Queensland).
Áhugasamir geta nálgast greinina hjá Bjarna K. Kristjánssyni.