Grettir á hálendisvaktinni

Björgunarsveitin Grettir á Hofsósi var á hálendisvakt vikuna 20. júlí til 27. júlí og voru staðsettir í Nýjadal á Sprengisandi.  Fyrsta verkefni sveitarinnar var að taka niður skilti á Gæsavatnaleið en sú leið var opnuð þá helgi. 

 Hálendisvakt björgunarsveitarinnar Grettis 2012. Mynd: Guðmundur Björn Eyþórsson Aðstoð við að skipta um framdekk á rútu með ítalska ferðamenn við Versali.

Annars var nóg um að vera þessa viku að sögn Guðmundar Björns Eyþórssonar hjá Gretti  enda ferðamannastraumurinn mikill á þessum tíma.  Verkefnin voru fjölbreytt, eða frá ráðgjöf til ferðamanna um færð vegaslóða upp í útköll eftir ferðamönnum á biluðum bílaleigubílum í miðri auðninni. Meðfylgjandi myndir tók Guðmundur á hálendisvakt Grettis.

 Hálendisvakt björgunarsveitarinnar Grettis 2012. Mynd: Guðmundur Björn Eyþórsson Áttaviltur ferðamaður með ævintýraþrá þurfti að fá aðstoð sveitarmanna í að finna Sprengisandsleið aftur.

Fleiri fréttir