Gróðavegur – 3.5% afnotagjald

Metafkoma varð  í sjávarútvegi  á árinu 2011. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnskostnað varð 80 milljarðar króna eða 30% af öllum tekjum greinarinnar.  Þetta er árið sem skilaði 25 – 30 milljarða króna tekjum af makrílveiðum án fjárfestingar í skipum né í búnaði að nokkru ráði. Þetta er árið sem veiðirétturinn á makríl kostaði  aðeins 140 milljóna króna. Þetta er árið sem landsmenn öxluðu skattahækkanir og niðurskurð í heilbrigðiskerfinu en útvegsmenn öxluðu gróðann.

Framlag þeirra til ríkisins í formi veiðigjalds var einungis  3.7 milljarðar króna.  Hreinn hagnaður, það sem eftir stendur þegar allt er tiltekið, varð 60 milljarðar króna. Það er helmingur af vátryggingarverðmæti alls fiskiskipaflotans.

Stjórnarflokkarnir komust til valda 1. febrúar 2009. Eitt stærsta baráttumál þeirra var að breyta tekjuskiptingunni  þannig að aukinn hluti þess sem þegar er greitt fyrir veiðiréttinn á Íslandsmiðum renni til þjóðarinnar og minna til handhafa kvótans. Síðan eru liðin 3 metár í sjávarútvegi 2009-2011. Svonefnd EBITDA, hagnaður af rekstri í veiðum og vinnslu  til þess að standa undir afskriftum og fjármagnskostnaði varð samtals 207 milljarðar króna. Hagnaður þessara þriggja ára er fáheyrður og jafngildir helmingi af öllum skuldum greinarinnar.  Samanlögð gjaldtaka fyrir afnotin af fiskimiðunum, veiðigjaldið,  var „hófleg“,  7 milljarðar króna á þessum gróðaárum. Ríkisstjórnin lét gróðaveg útgerðarinnar ósnertan, þar til nú undir blálok kjörtímabilsins. Hún afhenti nánast ókeypis aðgang að veiðum á nýjum fisktegundum.  Gjaldið fyrir aðganginn að fiskimiðunum var 3.5%  en gjaldið fyrir aðganginn að heilbrigðiskerfinu er  komið upp í 20%.

Áfram verður útgerð á Íslandsmiðum gróðavegur. Það er m.a. vegna þess að útgerðarmenn og sjómenn eru harðduglegir, útsjónarsamir og framfarasinnaðir. En það er líka vegna þess að fiskimiðin eru auðnýtanleg og einstaklega gjöful af verðmætum fisktegundum.  Það fást  góðar tekjur með tiltölulega litlum stofnkostnaði. Heildartekjur útgerðarinnar einnar er um 160 milljarðar króna en vátryggingarverðmæti flotans  aðeins um 120 milljarðar króna. Árlegar afskriftir eru aðeins 8 milljarðar króna. Þetta er ástæðan fyrir því að kvótinn, veiðirétturinn,  er svo hár í verði  sem raun ber vitni; það er svo mikil hagnaðarvon. Útgerð er gróðavegur.

Kristinn H. Gunnarsson

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir