Guðmundur og Ólafur Þór sigruðu í Skagafjarðarrallinu 2012

Skagafjarðarrallið fór fram í gær og í dag og voru það Guðmundur Höskuldsson og Ólafur Þór Ólafsson á Subaru Impreza sem komu fyrstir í mark,  fóru allar 12 sérleiðarnar á 1:17:26. Mikill afföll urðu í rallinu, sem tókst þó með miklum ágætum, en aðeins 10 af 17 áhöfnum skiluðu sér í mark.

Heimamaðurinn Baldur Haraldsson og Aðalsteinn Símonarson urðu í öðru sæti, 47 sekúndum á eftir sigurvegurunum á tímanum 1:18:13 en þeir óku sömuleiðis Subaru Impreza. Þriðju í mark voru Jón Bjarni Hrólfsson og Halldór Vilberg á 1:19:15 en fararskjóti þeirra var Jeep Cherokee.

Rallarnir þeystu um á tryllitækjum sínum á Þverárfjalli, Laxárdal og Sauðárkrókshöfn í gær en í dag var bensínið stigið í botn í Mælifellsdal, Vesturdal og á Nöfum á Sauðárkróki.

Hægt er að nálgast úrslit í Skagafjarðarrallinu á heimasíðu Bílaklúbbs Skagafjarðar sem hafði veg og vanda að rallinu en það er sennilega eitt það stærsta sem klúbburinn hefur haldið.

Fleiri fréttir