Guðrún Gunnars fagnar 30 ára söngafmæli

Guðrún Gunnarsdóttir söngkona fagnaði 30 ára söngafmæli á síðasta ári, og í tilefni af því kom út plata með hennar bestu lögum fyrir síðustu jól. Platan heitir einfaldlega Bezt og er hluti af hljómplöturöð á vegum Dimmu útgáfu. Guðrún er Skagfirðingum að góðu kunn, m.a. eftir að hafa komið fram með Karlakórnum Heimi sl. vor.

Í tilefni af bæði afmælinu og útkomu plötunnar hélt Guðrún tónleika í Salnum í Kópavogi í byrjun nóvember, miðarnir seldust upp á örstuttum tíma og eftirspurnin var mikil, hefur því verið ákveðið að heimsækja Akureyringa og endurtaka þessa tónleika í Menningarhúsinu Hofi laugardaginn 22.febrúar.

Á efnisskránni verða ýmis lög af ferlinum, sem spannar um 30 ár. Má þar helst nefna lög af sólóplötunum Eins og vindurinn(2004) og Umvafin englum(2008), lög af plötunni sem var til heiðurs Cornelis Vreeswijk(2009) og metsöluplötunni Óður til Ellyjar(2003) sem var tekin upp í Salnum og Guðrún hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir árið 2003, ásamt lögum sem hafa verið algengir gestir á efnisskrá söngkonunnar í gegnum tíðina. Sérstakur gestur á tónleikunum verður Friðrik Ómar.

Fleiri fréttir