Hægt að styrkja fjölskylduna sem situr föst í Kólumbíu í Reykjavíkurmaraþoni
Reykjavíkurmaraþon verður þreytt um næstu helgi og er þátttakan góð. Hægt er að heita á marga hlaupara sem styrkja góð málefni og eru þau ófá. Meðal málefna verður hægt að styrkja þau Bjarnhildi og Friðrik sem sagt hefur verið frá hér á Feyki þar sem þau sitja föst í Kólumbíu með dætur sínar tvær.
Á Fésbókarstyrktarsíðu þeirra segir að félagið heiti Föst í Kólumbíu – Börnin heim, á Reykjavíkurmaraþoninu og á það að detta inn á heimasíðuna hjá þeim á morgun og fólk því beðið um hinkra eftir því, þeir sem eru að skrá sig til hlaups. Fjölskyldan er að fara i viðtal hjá Morgunútvarpi Rásar 2 og í Ísland í dag í vikunni þar sem fjallað verður um þeirra mál og auglýst að hægt sé að styrkja þau í maraþoninu.