„Hættu að hanga! Komdu að ganga, hjóla eða að synda!“
„Hættu að hanga ! Komdu að synda vikuna 1. -7.október í sundlaug Sauðárkróks. Allir að taka þátt,“ segir á heimasíðu Tindastóls en í tilefni af svokallaðri „Move Week“ eða Viku hreyfingarinnar 1. -7.október ætlar Sunddeild Tindastóls að bjóða upp á opnar sundæfingar.
Um er að ræða samevrópskt verkefni á vegum ISCA og er markmiðið með átakinu að fá sem flesta Evrópubúa til að hreyfa sig fyrstu viku í október og hvetja til heilbrigðs lífsstíls. Árið í ár verður tekið sem undirbúningur fyrir þau sem eftir koma og markmiðið er að árið 2020 verið 100 milljónir fleiri Evrópubúa farnir að hreyfa sig reglulega.
Sunddeild Tindastóls býður upp á opnar sundæfingar á þessum dögum fyrir allan aldur.
- 2. október Þriðjudag kl: 15:00-16:00
- 3. október Miðvikudag kl: 15:-16:00
- 5. október Föstudag kl: 15:00-16:00
Á heimasíðu Tindastóls segir að Sigurjón Þórðarson sundgarpur verður í sundlaug Sauðárkróks þessa daga og leiðbeinir ef einhver þarf að bæta eða laga sína tækni í sundi.
- 1. október kl. 17:30-19:00
- 4. október kl.17:30-19:00
- 5. október kl.17:30-19:00
Nánari upplýsingar um átakið er að finna á heimasíðunni www.nowwemove.com.