Hafna alfarið lagningu 220kV loftlínu frá Blöndustöð til Akureyrar
Um páskana var haldinn fundur um Blöndulínu 3 á Mælifellsá í Skagafirði. „Á Íslandi er nóg komið af óarðbærum framkvæmdum þar sem hagsmunum framtíðar er fórnað á altari stundarhagsmuna. Fundurinn fordæmir skammsýni þá er einkennir fyrirhugaðar framkvæmdir við Blöndulínu 3 og hvetur landsmenn alla til að kynna sér þá eyðileggingu sem kerfisáætlun Landsnets mun hafa í för með sér,“ segir í ályktun fundarins.
Fleiri ályktanir litu dagsins ljós eins og eftirfarandi sýnir.
„Fundur um Blöndulínu 3, haldinn á Mælifellsá í Skagafirði þann 30. mars 2013, hafnar alfarið lagningu 220kV loftlínu frá Blöndustöð til Akureyrar með tilheyrandi háspennumöstrum.
Almenningsþörf býr ekki að baki áætlunum um lagningu Blöndulínu 3, þrátt fyrir áróður Landsnets um hið gagnstæða. Framkvæmdin, verði af henni, mun spilla náttúru Íslands og draga úr möguleikum til uppbyggingar sjálfbærrar matvælaframleiðslu og ferðamennsku.
Skattgreiðendur munu bera kostnað og áhættu vegna framkvæmdarinnar, sem þjónar eingöngu hagsmunum stóriðju og er fyrsta skrefið í hringtengingu stóriðjuvera, samkvæmt kerfisáætlun Landsnets. Með öllu er óásættanlegt að skattgreiðendur niðurgreiði enn frekar raforkuflutninga til stóriðjufyrirtækja, sem þegar njóta óeðlilegra skattfríðinda hér á landi.
Á Íslandi er nóg komið af óarðbærum framkvæmdum þar sem hagsmunum framtíðar er fórnað á altari stundarhagsmuna. Fundurinn fordæmir skammsýni þá er einkennir fyrirhugaðar framkvæmdir við Blöndulínu 3 og hvetur landsmenn alla til að kynna sér þá eyðileggingu sem kerfisáætlun Landsnets mun hafa í för með sér.“