Hagur loðdýrabænda vænkast
Bændablaðið segir í dag frá því að loðdýrabændur séu afar ánægðir með nýafstaðið uppboð á skinnum í Kaupmannahöfn. Því lauk í byrjun vikunnar og fengust um 6 þúsund krónur fyrir skinn að meðaltali.
Þetta er um 20% hærra verð en fékkst fyrir skinn á síðasta uppboði sem var í byrjun febrúar en þá hafði verð hækkað um 79% frá í haust og segir Einar Einarsson, loðdýrabóndi á Syðra-Skörðugili í Skagafirði, að brúnin á loðdýrabændum hafi lyfst töluvert við þessar nýju vendingar og meiri bjartsýni ríki í hópi þeirra bænda sem enn stunda loðdýrarækt á Íslandi en þar standa raunar fáir eftir.
„Þetta lofar góðu og mér sýnist þetta nú allt vera á uppleið. Það eru tvö uppboð eftir á þessu ári, í júní og september, og mér sýnist þessi tvö fyrstu lofa mjög góðu um framhaldið,“ segir hann. Verðið sem fékkst nú, 6 þúsund krónur fyrir skinn, er yfir framleiðslukostnaði og er það í fyrsta sinn í um fimm ár sem það gerist. „Það var kominn tími til, þetta er mjög jákvætt,“ segir Einar í samtali við Bændablaðið. Loðdýrabúin hafi verið rekin með tapi undanfarin ár.