Haldinn verður Nýársfagnaður á Mælifelli með 16 ára aldurtakmarki

Vegna fjölda áskorana foreldra í Skagafirði hefur verið ákveðið að halda nýársfagnað með 16 ára aldurstakmark á Mælifelli 1. janúar og hefst dansleikur kl 23:00. Útlit var fyrir að ekkert yrði um skemmtun fyrir þennan aldurshóp en síðastliðin 2 ár hefur verið haldinn sambærilegur nýársfagnaður og hafa þeir farið afskaplega vel fram að mati þeirra sem að honum koma. Þeir sem standa að dansleiknum eru fornvarnarhópurinn, Mælifell, foreldrafélög og lögreglan.

Sérstaða fagnaðarins er sú að algjörlega er farið eftir áfengislögum og sést því ekki áfengi á nokkrum manni. Alskagfirsk hljómsveit  mun leika á ballinu sem ber nafnið Hljómsveit ársins og er talsmaður hennar gítarleikarinn Reynir Snær. Sætaferðir munu fara frá Hofsósi og Varmahlíð. -Nú er bara málið að mæta á Mælifell á nýársfagnað sem auglýstur verður nánar á götuauglýsingum og facebook milli hátíða, segir í tilkynningu frá aðstandendum skemmtunarinnar.

Fleiri fréttir