Hamarinn snýr heim!

Á einum af margumræddum netrúntum sínum fyrir nokkrum misserum hnaut Fröken Fabjúlöss um Facebooksíðu sem heitir Thors Hammer Wristbands. Ekki var góntíminn langur áður en Fröken Fabjúlöss var orðin algjörlega ástfangin af armböndunum sem þessi hönnuður framleiðir, og lét það lítið sem ekkert á sig fá þó að þau væru nú aðallega ætluð karlmönnum! Þegar Fab rak svo augun í það að hönnuðurinn væri arfaÍslenskur þó hann væri búsettur í Kaupmannahöfn, og handgerði hvert einasta armband með dass af ást, rokki og ættjarðarstolti jókst hamingjan og gleðin jafnt og þétt!

Í dag er Frökenin ennþá jafn hrifin af þessum vörum og hefur fjárfest í nokkrum armböndum, bæði fyrir sjálfa sig og aðra! Einar Thor, hönnuðurinn, hugmyndasmiðurinn, framleiðandinn og lífskúnstnerinn á bak við armböndin er nú fluttur til Íslands þannig að nú þurfa Íslendingar ekki að greiða tolla af armböndunum þegar þau berast á klakann, og það gleður Frökenina einnig fram úr hófi! Það sem heillar Frk. Fab við armböndin hans Einars er skír tilvísunin í víkingaarfleifðina okkar, bæði í útliti ár armböndunum og nöfnunum á þeim!

Nú hefur Einar Thor bætt enn einni skrautfjöðrinni í safnið þar sem nú er komin út nýjasta línan frá honum sem kallast "Fortíð". Fortíð inniheldur bæði eldri hönnun í nýjum búningi, nýja hönnun og það nýjasta hjá honum- armbönd hönnuð fyrir kvensur! Uppáhaldsarmband Frk Fab í þessari línu er "Snorra-Edda", en á það armband þrykkti meistarinn textabrot úr Snorra Eddu í upprunalegu letri og lúkki, þannig að nú geta Íslendingar hnarrreistir gengið með sögu þjóðarinnar á úlnliðnum!

Thors Hammer er einnig með fatalínu sem inniheldur boli og peysur, og ýmislegt sem Einar Thor hefur á prjónunum með framtíðina! Thors Hammer Wristbands er uppáhald hjá Fröken Fabjúlöss og alveg gjörsamlega tilvalið í jólagjöfina! Fröken Fabjúlöss lætur fljóta með myndir úr nýju línunni, en mælir eindregið með því að kíkja inn á facebook síðu Thors Hammer og berja augum fegurðina þar!

Fleiri fréttir