Handverkssýning og sölubasar á Dagdvöl aldraðra
Laugardaginn 14. nóvember kl. 14:00–17:00 verður sannkölluð jólastemning á handverkssýningu notenda Dagdvalar aldraðra og sölubasar. Sýningin verður í samverusal HSN og anddyri Dagdvalar.
Á boðstólum verða fallegir munir og hægt verður að gæða sér á vöfflum, heitu súkkulaði og kaffi. Verð er 1.500 kr. fyrir 10 ára og eldri og rennur allur ágóði kaffisölunnar til föndurstofu Dagdvalar.
Verið öll hjartanlega velkomin.
Nánari upplýsingar og skráning á söluborð í síma 453-5909. /hmj
