Hár dagsins!

Eftir leiðinda millibilsástand hárlega séð er Fröken Fabjúlöss að detta inn í þá sídd að geta farið að vera með eitthvað annað en subbusnúð (tekið í tagl og hárinu hrúgað einhvernveginn inn í teygjuna) eða Pocahontasfléttur og að því tilefni hafa "do it yourself" hárkennslumyndir rokið upp vinsældarlistann á netrúntinum!

Ein er sú snilld er Frk. Fab hnaut um á dögunum sem fékk að fara í tilraunahorn morgunsins, og kom svona líka ótrúlega lekker út: Fléttuð hárspöng úr eigin hári! Þetta er alveg ótrúlega sniðug greiðsla og einu hæfniskröfurnar eru þær að kunna að flétta venjulega einfalda fléttu en að vísu þarf hárið helst að vera komið niður fyrir axlir til að fléttan nái alla leið.

Aðgerðin sjálf tekur svona sirka þrjár til fimm mínútur frá byrjun til enda og útkoman er svo fáránlega fabjúlöss að við hérna í höfuðstöðvum Fabjúlöss skörtum þessari snilld í dag og munum örugglega gera aftur af og til!

Hér fyrir neðan má finna hvernig hægt er að gera þessa auðveldu fabjúlöss greiðslu stig fyrir stig:

P.S. Við viljum samt taka það fram að módelið á myndunum er ekki að finna hérna í höfuðstöðvum Fab, heldur býr hún líklegast einhversstaðar úti í heimi...

 

Fleiri fréttir