Hátíðarsamkoma í Efranúpskirkju
Í tilefni þess að 50 ár eru frá vígsluafmæli kirkjunnar á Efra-Núpi verður sérstök hátíðarsamkoma í kirkjunni laugardaginn 30. júlí, kl. 14. Biskup Íslands, hr. Karl Sigurbjörnsson, predikar við messu og prestar héraðsins þjóna ásamt ásamt prófasti.
Miklar umbætur hafa farið fram á kirkjunni undanfarin sumur, af hollvinum hennar og gert verður grein fyrir þeim endurbótum. Skáld-Rósu verður minnst og verður einnig haldið stutt námskeið í fjöldasöng með undirleik Pálínu F. Skúladóttur.
Sr. Guðni Þór Ólafsson, sóknarprestur, býður öllum velkomnum til hátíðar.