Haukarnir koma ekki
Haukarnir sem ætluðu að etja kappi við Stólana í unglingaflokki karla í körfubolta í kvöld hafa tilkynnt að þeir sjái sér ekki fært að klára Íslandsmótið og gefa því leikinn við Tindastól. Því verður enginn leikur í kvöld en fyrir vikið fá Stólarnir heimavallarrétt í 8-liða úrslitunum.