Heilsugildi sjóbaða

Í kvöld kl 20:00 bíðst áhugasömum byrjendum um sjóbaðsiðkun að heimsækja nýja upplýsingamiðstöð að Aðalgötu 20 á Sauðárkróki og fræðast um þessa heilsusamlegu íþróttagrein sem nýtur sívaxandi vinsælda. Benedikt S. Lafleur mun fjalla um heilsugildi sjóbaða út frá reynslu sinni og vísindalegum rannsóknum, einkum frá Finnlandi.

Þá verður gestum boðið upp á blóðþrýstings- og hjartsláttarmælingar. Sýndar verða myndir frá sjóböðum og afrekssundum. Byrjendum verða gefin góð ráð og rætt verður vítt og breytt um sjóböð. Þess má einnig geta að á föstudagskvöldið kl 20:00 verður heimildamyndin Sundið sýnd í áðurnefndri upplýsingamiðstöð.

Fleiri fréttir