Heimir heldur tónleika sunnan heiða
Karlakórinn Heimir ætlar að halda tónleikaröð sunnan heiða um helgina sem heitir „Svífðu með“. Tónleikarnir voru haldnir í fyrsta sinn á þrettándaskemmtun í Miðgarði í janúar sl. og nú síðast í Hofi á Akureyri við mjög góðar undirtektir.
Karlakórinn byrjar á því að halda tónleika í Tónbergi á Akranesi sem hefjast kl. 20:30. Miðasala verður við innganginn.
Á laugardaginn, 2. mars, verða haldnir tveir tónleikar í Langholtskirkju, þeir fyrri kl. 14 og seinni kl. 17. Að sögn Jóns Sveinssonar í stjórn karlakórsins syngja Guðrún Gunnarsdóttir, Óskar Pétursson og Ari Jóhann Sigurðsson þar einsöng með kórnum. Forsala miða fer fram á Miði.is.
„Svífðu með“ mun svo halda áfram yfir á austurlandið þann 13. apríl og þá heldur kórinn tónleika á Eskifirði kl. 14 og Egilsstöðum kl. 20:30.
Hér má sjá stiklu frá Þrettándaskemmtun kórsins í Miðgarði: