Heimismenn setja upp „mottur“

Karlakórinn Heimir hélt tónleika fyrir fullu húsi í Guðríðarkirkju í gær og settu upp „mottur“ til stuðnings krabbameinsátakinu Mottumars. „Það var skyndiákvörðun tekin í gær um að styrkja málefnið,“ segir Gísli Árnason, formaður Karlakórsins Heimis, í samtali við blaðamann mbl.is.

Þar sem ákvörðunin var tekin með stuttum fyrirvara gafst Heimismönnum ekki tími til þess að safna mottum, því gripu þeir til annarra ráða og settu upp „mottuslaufur“ í stað hinna hefðbundnu.

Kórmeðlimir eru ófeimnir við að spauga svolítið, eins og þekkist, en að sögn Gísla var þetta aðallega gert til þess að vekja athygli á málefninu og gerir hann ráð fyrir að þeir muni flagga þessu í marsmánuði.

 

Fleiri fréttir