Heitast í Blönduhlíðinni
Það hefur eflaust ekki farið framhjá neinum að veðrið hefur verið með besta móti undanfarna daga. Í gær var veðrið sérstaklega gott og fór hitinn mest uppí 19.9 gráður en sá hiti mældist á Miðsitju í Blönduhlíð. Það kemur Blöndhlíðingum ábyggilega ekki á óvart, enda tala þeir gjarnan um að þar sé alltaf besta veðrið.
Við megum búast við svipuðu veðri næstu daga en á vef Veðurstofunnar hljóðar spáin svo:
„Suðlæg eða breytileg átt 5-10 m/s. Léttskýjað og hiti 8 til 18 stig yfir daginn, hlýjast í innsveitum. Suðaustan 8-15 m/s á morgun, bjart með köflum og hiti breytist lítið.“
/SMH