Helga Einarsdóttir í landsliðið

Í morgun hélt A-landslið kvenna í körfuknattleik af stað á norðurlandamótið sem fram fer í Osló að þessu sinni. Fyrsti leikur liðsins á mótinu er á morgun, fimmtudag, gegn heimastúlkum í liði Noregs. Helga Einarsdóttir frá Sauðárkróki var valin í liðið en hún hefur verið leikmaður KR undanfarin misseri.

Leikjaplanið er eftirfarandi: (ísl. tími)

  • · Fimmtudagur: kl. 16.00 · Ísland - Noregur
  • · Föstudagur: kl. 09.00 · Ísland - Svíþjóð
  • · Föstudagur: kl. 17.00 · Ísland - Danmörk
  • · Laugardagur: kl. 14.00 · Ísland - Finland

Leikirnir verða í beinni tölfræðilýsingu á heimasíðu KKÍ í gegnum BasketHotel.

Punktar:

· Gunnhildur Gunnarsdóttir, Haukum, er nýliðinn í hópnum.

· Fylgdarlið stelpnanna er ekki að verri endanum, Guðbjörg Norðfjörð fer fyrir hönd KKÍ, Anna María er aðstoðarþjálfari og Björg Hafsteinsdóttir er sjúkraþjálfari, ágætis reynsla þar á ferð.

· Hildur Sigurðardóttir, Snæfelli, er landsleikjahæst í liðinu með 66 A-landsleiki.

· Sverrir Þór er að fara í sína fyrstu leiki sem landsliðsþjálfari, hann var aðstoðarþjálfari hjá U20 lið karla í Evrópukeppninni s.l. sumar.

Landsliðið er skipað eftirtöldum leikmönnum: (Fjöldi landsleikja fyrir aftan)

  • Gunnhildur Gunnarsdóttir · Haukar · Nýliði
  • Helena Sverrisdóttir · Good Angels Kosice · 38
  • Pálína Gunnlaugsdóttir · Keflavík · 15
  • Petrúnella Skúladóttir · Njarðvík · 18
  • Margrét Kara Sturludóttir · KR · 9
  • Hildur Sigurðardóttir · Snæfell · 66
  • Helga Einarsdóttir · KR · 4
  • Sigrún Ámundadóttir · KR · 20
  • Hafrún Hálfdánardóttir · KR · 5
  • María Ben Erlingsdóttir · Valur · 33
  • Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir · Njarðvík · 12
  • Ólöf Helga Pálsdóttir · Njarðvík · 3

 

  • Þjálfari: Sverrir Þór Sverrisson
  • Aðstoðarþjálfari: Anna María Sveinsdóttir
  • Sjúkraþjálfari: Björg Hafsteinsdóttir

 

  • Fararstjóri: Guðbjörg Norðfjörð
  • Dómari: Björgvin Rúnarsson

Fleiri fréttir