Helga Rós stjórnar Heimi

Á heimasíðu karlakórsins Heimis er greint frá því að Stefán Gíslason, kórstjóri, mun taka sér ársfrí frá stjórnun kórsins af persónulegum ástæðum. Hafa kórfélagar ráðið Helgu Rós Indriðadóttur til þess að stýra kórnum í fjarveru Stefáns.

Vetrarstarf Karlakórsins Heimis hefst með æfingu í Miðgarði mánudagskvöldið 18. október kl. 20:30. Megin þema vetrarins verður kynnt síðar en það verður með hefðbundnara sniði en undanfarin ár þar sem við höfum blandað  saman leiklestri og söng.

Helga Rós frá Hvíteyrum er að góðu kunn sem einsöngvari, óperusöngkona og leiðbeinandi á vinsælum námsskeiðum fyrir söngfólk hér í firðinum.  Þetta er ekki í fyrsta sinn sem kona stjórnar Heimi, því Stefán hefur áður fengið leyfi frá störfum og þá hljóp Sólveig Sigríður Einarsdóttir, betur þekkt sem Sísa á Mosfelli, í skarðið með góðum árangri.

Sem fyrr mun Thomas Higgersson annast undirleik og raddþjálfun.  Við minnum á að kórinn stendur öllum opinn sem hafa áhuga á skemmtilegum félagsskap og telja sig geta sungið tiltölulega skammlaust.  Áhugasamir geta haft samband við Jón formann í síma 8921319 eða sent póst á heimir@heimir.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir