Helgi Rafn sópaði að sér verðlaunum

Lokahóf körfuknattleiksdeildar Tindastóls var haldið á Mælifelli á laugardagskvöldið. Boðið var upp á mat, skemmtiatriði og verðlaun afhent fyrir afrek keppnistímabilsins. Helgi Rafn Viggósson sópaði að sér verðlaunum en þeir Pétur Rúnar, Sigurður Páll og Hreinn Gunnar hlutu einnig viðurkenningar.

Verðlaun fyrir bestu ástundunina fékk Sigurður Páll Stefánsson og mikilvægasta karfan var valin sú sem Hreinn Gunnar Birgisson skoraði í leik við KR og lokakarfa hans í leik við Fjölni. Pétur Rúnar Birgisson, sem staddur er í Svíþjóð að keppa með U18 landsliðinu, var verðlaunaður fyrir mestu framfarirnar og kosinn efnilegasti leikmaðurinn.

Besti leikmaðurinn er kosinn af leikmönnum og fyrir valinu varð Helgi Rafn Viggósson. Helgi Rafn var einnig valinn besti varnarmaðurinn, auk þess að vera stigahæstur með 12,3 stig að meðaltali í leik og frákastahæstur með 6,8 fráköst að meðaltali í leik.

Stefán Jónsson stýrði veislunni og bætti um betur með því að verðlauna Margeir Friðriksson fyrir brot ársins, það er hálsbrot. Þá fengu þeir Viggó Jónsson myndatökumaður og Óli Björn Stefánsson (Dúddi) bílstjóri þakklætisvott fyrir sitt framlag.

Fleiri fréttir