Helgihald um jól og áramót í Sauðárkróksprestakalli
Þann 23. desember, Þorláksmessu verður haldin kyrrðarstund í Sauðárkrókskirkju og hefst kl.21. Helga Rós Indriðadóttir syngur sígilda jólasálma og vaggar fólki inn í helgi hátíðarinnar. Notaleg stund til að hrista af sér jólastressið og komast í hátíðarskap, segir á heimasíðu kirkjunnar.
Eftirfarandi dagskrá er einnig þar að finna:
24. desember, aðfangadagur jóla: Aftansöngur kl.18. Syngjum jólin inn með hátíðarsöngvum sr.Bjarna. Kirkjukórinn leiðir sönginn, Sigríður E. Snorradóttir syngur einsöng. Miðnæturmessa kl.23.30. Englarnir syngja með kirkjukórnum á jólanótt og Sigurdríf Jónatansdóttir syngur einsöng.
25. desember, jóladagur: Hátíðarmessa kl.14. Kirkjukórinn leiðir söng. Einsöngur Guðrún Helga Jónsdóttir frá Miðhúsum. Hátíðarmessa kl.15.30 á dvalarheimilinu Sauðárhæðum.
26. desember, annar dagur jóla: Jólamessa í Hvammskirkju á Laxárdal, kl.14. Einsöngur Pétur Pétursson.
31. desember, gamlársdagur: Aftansöngur kl.18. Kirkjukórinn leiðir söng. Einsöngur Kristján Valgarðsson og sr.Gísli Gunnarsson prédikar og þjónar fyrir altari.