Hertz bílaleiga opnar á Sauðárkróki

Hertz hefur  opnað nýtt umboð á Sauðárkróki í samstarfi við KS, Kaupfélag Skagfirðinga, og er það liður í að efla þjónustunet bílaleigunnar á landsvísu. „Á Sauðárkróki verður boðið uppá gott úrval nýrra bílaleigubíla, allt frá Yaris til öflugra Land Cruiser jeppa,“ segir í fréttatilkynningu frá bílaleigunni.  

Hertz bílaleiga rekur nú 11 starfstöðvar víðsvegar um landið og eykur þannig við  þéttriðið þjónustunet sitt.

Umboðið er staðsett við þjónustuverkstæði Kaupfélagsins í Kjarnanum, Hesteyri 2,   þar mun bílaleigan þjónusta m.a. fyrirtæki, einstaklinga, verkstæði og tryggingarfélög.

Hægt er að bóka beint á Sauðárkróki í síma 522 4488, eða í bókunarnúmeri Hertz 522 4400,  ásamt  bókun á  vefsíðu fyrirtækisins, www.hertz.is

Það er von Hertz að þessi opnun uppfylli þarfir viðskiptavina á svæðinu,“ segir loks í tilkynningu.

Fleiri fréttir