Hita- og ljósleiðaralagnir hætt komnar
Hofsáin hefur verið á hreyfingu undanfarið og hefur það leitt til þessa að hita- og ljósleiðaralagnir hafa flotið upp á yfirborðið og verið í hættu. Samkvæmt heimasíðu Skagafjarðarveitna kom þetta fyrir á tveimur stöðum, þ.e. í Hofsánni og einnig í Grafaránni.
„Verið var að gera við og koma lögnunum aftur niður fyrir árbotninn fyrir nokkru. Taka varð lagnirnar upp, dýpka rásina og setja poka fyllta með steypu ofan á,“ segir á heimasíðunni.
Myndir frá viðgerðunum eru af heimasíðu Skagafjarðarveitna.