Hjálmar á börnin

Eins og mörg undanfarin ár gefur Kiwanisklúbburinn Drangey, í nánu samstarfi við Eimskipafélag Íslands, öllum sjö ára börnum á starfssvæði klúbbsins, reiðhjólahjálma. Hefur þetta verið fastur liður í starfi klúbbsins í allmörg ár.

Boðið verður til grillveislu með pylsum og viðeigandi við Árskóla neðra stigs (gamla barnaskólann) fyrir viðtakendur, foreldra þeirra og aðstandendur fimmtudaginn 25 apríl, nk. sumardaginn fyrsta kl. 10:30. Verkefni þetta er liður í starfi Kiwanis, Börnin fyrst og fremst.

Fleiri fréttir