Hlakkar til að vera með Skagfirðingum

Eivør Pálsdóttir hefur útgáfutónleikaferðalag sitt með því að koma fram á Tónlistarhátíðinni Gærunni og segist hlakka ótrúlega mikið til. Feykir hafði samband við Eivøru og spurði hana út í tónlistina og lífið.  

Hvenær var hljómsveitin stofnuð og hvað heita hljómsveitarmeðlimir?

Hljómsveitin sem slík hefur aldrei verið formlega stofnuð en þessir tónlistarmenn eru samleikarar mínir á þessari plötu. Þetta er ný enn samt gömul hljómsveit. Ég hef unnið með Mikael Blak alveg síðan ég tók upp fyrstu plötuna mína 16 ára gömul og Magnus Johannessen hefur verið píanóleikari minn í mörg ár. Maðurinn minn Tróndur Bogason kemur með í þetta sinn til þess að styrkja okkur á þessum tónleikum því að hann hefur framleitt þessa plötu með mér. Ég er alveg rosaleg ánægð með þennan hóp og ég hlakka ótrúlega mikið til að spila á Gærunni :)

Hvernig myndir þú lýsa tónlist þinni?

Tónlistin mín hefur alltaf átt rætur sínar í færeysku þjóðlaga tónlistinni. Mér hefur samt alltaf fundist gaman að blanda saman elementum úr misjöfnu formi tónlistar, og nýja platan mín er góð blanda af því sem ég hef hingað til gert í tónlist, en aðal atriði hennar eru laglínur og sögur mínar. Nú vonast ég til að fólk komi og hlusti, því ég get ekki lýst tónlist, heldur vil ég vera hluti af henni.

Hefur einhvern tímann eitthvað skondið átt sér stað á tónleikum hjá þér?

Auðvitað verða skondnar uppákomur þegar listarmenn vilja vera einlægir og nýta sér augnablikið. En slík augnablik endurtekur maður ekki frekar enn óvæntu augnablikin í lífinu sem gefa því lit.

Hvernig leggst í þig að spila á Gærunni 2012?  

Mér er sagt að Skagfirðingar séu miklir söngmenn, svo auðvitað hlökkum við til að vera með þeim.

Hvað er á döfinni?

Að kinna plötuna mína er hlutverk mitt næstu mánuðina. Héðan fer ég til Færeyja, Danmerkur, Sviss og Noregs fram í byrjun desember.

http://www.youtube.com/watch?v=mGIEL05waps&feature=related

http://www.youtube.com/watch?v=xPwxiDC56kE&feature=related

 

Fleiri fréttir