Hné niður við leitir

Björgunarsveitarmaður hné niður og missti meðvitund þegar hann var að aðstoða við leitir á fjöllum í Skagafirði í dag en eins og fram hefur komið í frétt á Feyki.is þá var mikið átak í gangi í firðinum.

Að sögn Vernharðs Guðnasonar slökkviliðsstjóra var mannskapur sendur til að sækja manninn á fjöll en þyrla Landhelgisgæslunnar var í viðbragðsstöðu, þar sem óttast var að erfitt væri að koma honum til byggða.

Það tókst að koma manninum í sjúkrabíl og á Heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki þar sem hann gekkst undir læknisskoðun. Þar kom í ljós að ástand hans var ekki eins alvarlegt og óttast var í fyrstu og var hann útskrifaður og sendur til síns heima að hvíla sig.

Fleiri fréttir