Hólaskóli fær styrk til markaðssetningar

Sparisjóður Skagafjarðar veitti nýverið Hólaskóla - Háskólanum á Hólum styrk að upphæð kr. 50.000. Á heimasíðu Hólaskóla kemur fram að styrkur þessi sé sérstaklega ætlaður til markaðs- og kynningarstarfs en þegar hefur verið ákveðið að nýta hann til að gera kynningarmyndband fyrir skólann, og hafa nemendur tekið það verkefni að sér.

„Honum eru færðar bestu þakkir fyrir þetta framlag sem kemur sér vel og felur um leið í sér ákveðna viðurkenningu á mikilvægi skólans fyrir héraðið,“ segir á heimasíðu skólans.

Fleiri fréttir