Hollensk heimildarmynd truflar ættleiðingu

RÚV greinir frá því að vera kunni að gerð hollenskrar heimildarmyndar um ættleiðingar frá Kólumbíu hafi valdið því að ættleiðingarmáli þeirra Bjarnhildar Hrannar Níelsdóttur og Friðriks Kristinssonar var vísað til hæstaréttar. Eins og Feykir hefur greint frá hafa þau Friðrik og Bjarnhildur beðið í hálft ár eftir úrskurði dómara vegna ættleiðingar þeirra Birnu Salóme og Helgu Karólínu.

Kristinn Ingvason framkvæmdastjóri Íslenskrar ættleiðingar var í viðtali við Morgunútvarpið á Rás 2 í morgun og sagði að í kjölfar sýningar þessarar myndar hafi öll ættleiðingarmál verið tekin til endurskoðunar og fyrir vikið hafi öll mál tafist.

Kristinn sagði að þegar þessi meinta heimildarmynd sé skoðuð þá stendur ekki steinn yfir steini. „...þannig að það virðist vera að búa til falsaða heimildamynd til þess að ég veit ekki hafa áhrif á hvað en ættleiðingar er viðkvæmur málaflokkur, oft pólitískur þannig að við vitum ekki hvað vakir fyrir fólki sem býr til svona en þetta er staðan,“ sagði Kristinn.

Fleiri fréttir