Hollywoodhorn vikunnar

Frægðarsól „skagfirska“ leikstjórans Baltasars Kormáks fer ört stækkandi en hann hefur verið að vinna að kvikmyndinni Contraband, sem skartar ófáum stórstjörnunum.

Contraband er endurgerð af íslensku kvikmyndinni Reykjavík Rotterdam og fer Mark Wahlberg þar með aðalhlutverk, aðrir leikarar eru Kate Beckinsdale, Ben Foster og Lukas Haas. Í myndinni má einnig sjá íslenskum leikarum bregða fyrir. Hér má sjá stiklu úr myndinni.

Skilnaður í vændum

Allir slúðurmiðlar loga vegna hugsanlegs skilnaðar Demi Moore og Ashton Kutcher. En hann á að hafa stigið hliðarspor með hinni 23 ára Söru Leal í San Diego, um síðustu liðnu helgi. Þetta víst ekki þeirra fyrsti fundur, þar sem myndir af þeim saman hafa komið á yfirborðið frá því í júní sl. Það hefur vakið athygli að hjónakornin hafa ekki sést opinberlega síðastliðna tvo mánuði en að sögn kunnugra hefur Ashton þó ekki tekið af sér giftingarhringinn.

Ódauðlegur Schwarzenegger 

Nýjasta uppátæki sjarmatröllsins Arnolds Schwarzenegger verður líklega til þess að halda nafni kappans á lofti um ókomna tíð en hann hefur nú fjárfest í þremur bronsstyttum af sjálfum sér. Munu stytturnar sem sýna Arnold þegar hann var upp á sitt besta vera rúmir tveir og hálfur metri á hæð. Fyrsta styttan verður til sýnis á æskuheimili Arnolds, þar sem búið er að opna safn honum til heiðurs, önnur styttan verður í Columbus í Ohio-fylki þar sem árleg líkamsræktarhelgi tileinkuð Schwarzenegger er haldin. Þá þriðju mun hann eiga sjálfur.

Strípuð Rihanna

Bóndinn Alderman Alan Graham var á leið í traktorinn sinn þegar hann sá poppsöngkonuna Rihönnu fáklædda við tökur á myndbandi sínu. Eitthvað fór þetta fyrir brjóstið á karlinum, sem áður hafði gefið söngkonunni leyfi fyrir upptökunum á landareign hans, og bað hana vinsamlegast að hylja sig. „Mér fannst þetta óviðeigandi. Ég fór fram á það að myndatakan yrði stöðvuð og þeir gerðu það,“ sagði Graham. Hann ræddi málin við Rihönnu og að hans sögn tókust þau í hendur eftir samtalið.

Fleiri fréttir