Hollywoodhorn vikunnar
Hin danska Brigitte Nielsen lét ýmislegt flakka í sjónvarpsþættinum Ich bin ein Star – Holt mich hier raus! sem er þýska útgáfan af I'm A Celebrity... Get Me Out Of Here! Þar deildi hún með sjónvarpsáhorfendum hve afleitur elskhugi fyrrum eiginmaður hennar, Sylvester Stallone væri, hann hefði notað stera með tilheyrandi aukaverkunum sem hefðu minnkað getu hans í rúminu.
Einnig sagði Brigitte að Rambo-leikarinn hefði breyst eftir að þau gengu í hjónaband, hann hefði orðið mjög stjórnsamur og viljað eigna sér hana. Hjónabandið hefði verið hræðilegt. Leikarinn, sem nú er 65 ára að aldri, kvæntist Brigitte 1985 og entist hjónabandið í tvö ár.
Glens og gaman á Golden Globe hátíðinni
Golden Globe verðlaunahátíðin var haldin um sl. helgi og var leikarinn og grínistinn Ricky Gervais kynnir á hátíðinni í þriðja sinn. Ricky var sjálfum sér samkvæmur og drullaði yfir stjörnurnar á meistaralegan hátt, bæði þær sem fjarri voru sem og þær sem voru saman komnar í salnum.
Hann gerði m.a. grín af skammlífa hjónabandi Kims Kardahians og faðernisprófi Justin Biebers. Hér má sjá myndband með opnunarræðu Ricky´s.
http://www.youtube.com/watch?v=YQrMGlIE79M