Hollywoodhorn vikunnar

Flestum til mikillar gleði (nema kannski þeim sem hann mun beina spjótunum að) mun Ricky Gervais verða kynnir á Golden Globe verðlaunahátíðinni 2012. Eins og fram kom í síðasta Hollywoodhorni var orðrómur um ráðninguna en þetta var  loks staðfest í vikunni.

 

Mun þetta verða þriðja árið í röð sem Ricky verður kynnir á hátíðinni  en hann hefur hárbeittan húmor og skaut föstum skotum á stjörnurnar á síðustu tveimur verðlaunahátíðum á mjög eftirminnilegan hátt. Fyrir áhugasama eru hér myndbönd frá bestu augnablikunum á Golden Globe 2010  og 2011.

 

Demi sækir um skilnað

Þá er það komið á hreint: Demi skilur við Ashton (eða son Bruce Willis, eins og Ricky kallar hann á GG2011). Heimsbyggðin hefur beðið eftir viðbrögðum frá Demi við fréttum af framhjáhaldi Ashtons sem fóru eins og eldur í sinu um netmiðla fyrir nokkrum vikum.

Nú hefur hún loks gefið út yfirlýsingu: „Með sorg í hjarta hef ég ákveðið að binda enda á sex ára hjónaband mitt og Ashtons. Sem kona, móðir og eiginkona hef ég haldið tryggð við ákveðin gildi og heit og í þeim anda hef ég ákveðið að stíga skref fram á veg í lífi mínu. Þetta eru erfiðir tímar fyrir mig og fjölskyldu mína og því bið ég um að mér sé sýnd sama samúð og virðing fyrir einkalífi og ég myndi sýna öðrum sem lenda í svipuðum aðstæðum,“ segir í yfirlýsingunni.

The Daily Mail heldur því fram að aðrar og flóknari ástæður séu fyrir skilnaði Demi og Ashtons. Er það vegna þess að Demi er tvíkynhneigð og að Ashton hefur ekki getað veitt henni það sem hún þarfnast. Einmitt, það er örugglega sanna ástæðan fyrir skilnaðinum.

 

Twitter-barmur

Nokkuð ljóst er að hægt er að koma sér í vandræði á samskiptasíðunni Twitter eins og Dean McDermott, eiginmaður Tori Spelling, komst að í vikunni.

Hann birti voða krúttlega mynd af 4 ára syni þeirra Liam en gerði sér ekki grein fyrir því að þar mátti einnig sjá ber brjóst Tori í bakgrunni þar sem hún lá uppí rúmi. Dean er með 75.000 fylgjendur á Twitter, úps!

 

Fleiri fréttir