Hópslysaæfing í Skagafirði í lok mánaðar

 Laugardaginn 27. október 2012 verður haldin hópslysaæfing á starfssvæði Almannavarnanefndar Skagafjarðar þar sem æfð verða viðbrögð og geta viðbragðsaðila í Skagafirði til að takast á við stærri vá. Æfingin er haldin í samstarfi allra viðbragðsaðila í Skagafirði í samvinnu við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Ungir snillingar úr ungliðadeild björgunarsveitanna í héraðinu munu leika þá sem lent hafa í slysinu.

Búast má við nokkurri umferð björgunartækja og sjúkrabíla í forgangsakstri þennan dag frá klukkan 11:00 til 14:00 á svæðinu frá Sauðárkróki að veginum inn Sæmundarhlíð. Í tilkynningu frá Almannavarnanefnd Skagafjarðar verður hámarkshraði virtur þó að um forgangsakstur sé að ræða til að tryggja sem best öryggi vegfarenda. Eru íbúar og vegfarendur beðnir um að  að sýna þessu skilning.

Æfingunni lýkur svo með kjötsúpu og rýnifundi og gera áætlanir ráð fyrir að öllum störfum verði lokið klukkan 17:00.

Þessir viðbragðsaðilar eru þátttakendur í æfingunni:

  •             Almannavarnanefnd Skagafjarðar
  •             Almannavarnanefnd Ríkislögreglustjóra
  •             Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Skagafirði
  •             Brunavarnir Skagafjarðar
  •             Heilbrigðisstofnunin á Sauðárkróki
  •             Lögreglan á Sauðárkróki
  •             Rauðakrossdeild Skagafjarðar
  •             Ríkislögreglustjórinn - almannavarnadeild
    Neyðarlínan - 112

Fleiri fréttir