Hreinsi stal stigunum fyrir Stólana
Hann var talsvert einkennilegur leikur Tindastóls og Fjölnis sem fór fram í Síkinu í kvöld. Það var algjölega bráðnauðsynlegt fyrir heimamenn að taka stigin tvö enda bæði liðin í bullandi fallbaráttu og Stólarnir einir í neðsta sætinu. Lokamínúturnar voru afar dramatískar þar sem Stólarnir náðu að snúa leik sem nánast allir töldu tapaðan eftir ótrúlega slæman 15 mínútna kafla í síðari hálfleik. Tindastóll komst með mikilli baráttu inn í leikinn í blálokin og Hreinsi Birgis setti niður gott skot þegar sekúnda var eftir. Fjölnismenn náðu ekki að nýta hálfu sekúnduna sem þeim gafst til að jafna eða stela sigrinum líkt og þeir gerðu í Grafarvogi síðasta haust. Lokatölur 86-84.
Áður en leikurinn hófst heiðruðu leikmenn og áhorfendur minningu Lillu Jóns Karls sem lést um síðustu helgi eftir langvinn veikindi en það er óhætt að fullyrða að Tindastóll hefur ekki átt marga dyggari stuðningsmenn en Lillu.
Fyrri hálfleikur var ágæt skemmtun og liðin spiluðu á köflum fínan körfubolta. Fyrstu mínútur leiksins voru menn reyndar ansi kaldir og boltinn var að skoppa af körfunum. En svo allt í einu duttu allir í stuð og menn drituðu á körfuna. Fjölnismenn voru skrefinu á undan framan af leik og voru með 5 stiga forystu rétt um miðjan annan leikhluta en þá náðu Stólarnir virkilega góðum kafla og voru fyrr en varði komnir með 10 stiga forskot. Arnþór Freyr Guðmundsson minnkaði muninn fyrir gestina með einn af nokkrum þristum sínum í leiknum en staðan í hálfleik var 53-46 fyrir Tindastól og útlitið bara gott. Helgi Margeirs hafði sett niður 3 þrista og Valentine var stigahæstur með 11 stig en annars höfðu níu leikmenn Stólanna komist á stigatöfluna.
Í seinni hálfleik hófu gestirnir leik á því að stilla upp svæðisvörn og Stólarnir hrukku í einhvern þann grófasta baklás sem sést hefur í Síkinu. Það hvorki gekk né rak, boltinn gekk ekki nógu vel milli manna, menn glopruðu boltanum úr höndunum og voru hálf kjánalegir á köflum, skotin voru mörg úr erfiðum færum og það var eins og skytturnar sæju körfu Fjölnis í móðu. Það nánast klikkaði allt sem klikkað gat. Hægt og sígandi lufsuðust gestirnir framúr og þegar þriðja leikhluta blessunarlega lauk þá var staðan orðin 61-66. Stólarnir skoruðu semsagt 8 stig í leikhlutanum.
Leikur Tindastóls gat varla versnað en það má svosem deila um hvort sú varð raunin því Fjölnir jók forystuna enn frekar. Það var sama til hvaða ráðs Bárður greip, það voru allir eins og vankaðir inni á vellinum. Helgi Rafn hafði verið kældur niður á bekknum og kom inná þegar um fimm mínútur voru eftir og hann hleypti leiknum upp eins og honum einum er lagið. Vörnin þéttist og þegar um þrjár mínútur voru eftir var munurinn 5-6 stig. Stólarnir voru komnir með blóðbragð á tennur og skyndilega vöknuðu stuðningsmenn úr rotinu og hófu að hvetja sína menn. Nú voru það piltarnir úr Grafarvoginum sem frusu, skotin þeirra geiguðu og þeir fengu engan frið í sókninni. Drew Gibson var seigur á síðustu mínútunum en það var Hreinsi sem fékk það verkefni að taka síðasta skot Stólanna í leiknum. Hann fékk boltann frír rétt innan við 3ja stiga línuna og setti opið skotið niður eins og hann hefði aldrei gert annað. Fjölnir tók leikhlé og aðeins 0.4 sekúndur eftir á klukkunni. Nú voru allir komnir á fætur í Síkinu, vongóðir en kannski minnugir þess að í leik liðanna í haust þá fékk Fjöknir tækifæri til að vinna leikinn við svipaðar kringumstæður og þá setti Tómas Tómasson ævintýralegt skot niður og vann leikinn. Nú fékk Magni Hafsteinsson boltann en hann var aldrei að fara að setja skotið niður úr erfiðu færi og Stólarnir fögnuðu því sætum, sætum sigri. 86-84 - pjúh!
Eins og sést á ofanrituðu var leikurinn ansi kaflaskiptur og eins og stundum áður í vetur kom allt annað lið til leiks hjá Stólunum í síðari hálfleik en hafði spilað þann fyrri – svo sú gamla klisja sé tekin til kostanna. Valentine var stigahæstur Stólanna með rétt rúm 20 stig en annars var stigaskorið ansi jafnt. Þrátt fyrir þenna hörmungarkafla verður að hrósa leikmönnum Tindastóls að gefast ekki upp, endurkoman var mögnuð og stuðningsmenn alveg kampakátir. En Fjölnismenn skilja örugglega ekkert í því hvernig þeim tókst að tapa í kvöld!