Hreinsuðu 400 kíló af rusli úr fjörunni
Vinnuskóli skagafjarðar tók til starfa í síðustu viku og var fyrsta verk unglinganna að hreinsa rusl úr fjörunni við Borgarsand. „Verkið sóttist vel og vóg dagsverkið 400 kíló,“ segir á heimasíðu Svf. Skagafjarðar.
Í sumar starfa um 150 unglingar við Vinnuskólann og 25 í átaksverkefninu V.I.T., sem er fyrir 16-18 ára ungmenni. Allir unglingar sem hafa lögheimili í Skagafirði, yngri en 18 ára, og sóttu um starf fá vinnu hjá Vinnuskólanum í sumar.
„Fjölmörg verkefni bíða unglinganna, hreinsun gatna og torga, sláttur í görðum auk hefðbundinna garðyrkjustarfa. Þá er hluti hópsins að vinna við stofnanir sveitarfélagsins, íþróttamannvirki, leikskóla, sumar T.Í.M., golfvöllinn og nokkur fyrirtæki sem eru í samstarfi við Vinnuskólann um að fóstra og leiðbeina ungmennum í vinnu,“ segir loks á heimasíðunni.