Hrikalegur sigur í Síkinu

Tindastóll og Snæfell mættust í kvöld í hrikalega spennandi leik í Síkinu. Hlutskipti liðanna hafa verið ólík í Dominos-deildinni í vetur þar sem lið Snæfells hefur verið í toppbaráttu en Stólarnir sem lengi voru án stiga berjast nú fyrir sæti sínu í deildinni og um leið, nokkuð óvænt, sæti í úrslitakeppninni. Það var lið Tindastóls sem krækti í sigurinn með mikilli baráttu. Lokatölur 81-79.

Framan af fyrsta leikhluta voru gestirnir skrefinu á undan, komust í 6-12 og 15-19, en Stólarnir héngu í þeim og voru reyndar yfir að leikhlutanum loknum, 21-19, eftir að Tarick Johnson átti góða innkomu og gerði sex síðustu stigin. Johnson hafði heldur betur fundið fjölina sína og fór á kostum í byrjun annars leikhluta og gerði þá sjö fyrstu stig Stólanna en um miðjan leikhlutann náðu Snæfellingar yfirhöndinni þegar sóknarleikur Tindastóls varð frekar hugmyndasnauður og menn fóru að taka slakar ákvarðanir. Gestirnir breyttu stöðunni úr 28-27 í 30-35 og komust mest ellefu stigum yfir þegar tvær mínútur voru til leikhlés en þá blés Helgi Rafn í herlúðra og gerði tvær körfur í hvelli og hleypti lífi í leikmenn Tindastóls. Staðan í hálfleik 39-46 fyrir Snæfell.

Tindastólsmenn komu ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og spiluðu fantagóða vörn. Hvorugt liðið skoraði fyrstu tvær og hálfa mínútuna en þegar leikhlutinn var hálfnaður minnkaði Valentine, sem annars var frekar slakur í kvöld, muninn í eitt stig, 49-50, og mínútu síðar kom Hreinsi strákunum yfir með tveimur vítum og Helgi Rafn bætti um betur með stökkskoti. Staðan orðin 53-50. Gestirnir fengu nú lítinn frið til að athafna sig fyrir utan 3ja stiga línuna og augljóst að Stólarnir ætluðu ekki að gefa þumlung eftir. Þegar átta mínútur voru liðnar af þriðja leikhluta voru heimamenn komnir fjórum stigum yfir en Snæfell komst yfir á ný 56-57, en þá setti Svabbi niður stóran þrist og Stólarnir höfðu yfirhöndina að þriðja leikhluta loknum, náðu reyndar að halda Snæfelli í 13 stigum í leikhlutanum, og staðan 61-59 þegar fjórði leikhluti hófst.

Fjórði leikhluti var gríðarlega spennandi og skemmtilegur. Það var nánast jafnt á öllum tölum fram yfir miðjan leikhluta en þá komu tvær körfur frá Svabba og Helga Rafni og Tindastóll með fjögurra stiga forskot, 73-69. Jay Threatt, lítill ofursprækur leikstjórnandi og skytta sem átti flottan leik fyrir Snæfell, minnkaði bilið af vítalínunni en Johnson bætti tveimur við fyrir Stólana og síðan fór Helgi Margeirs langt með að tryggja sigurinn með flottum þristi, staðan 78-71 og tvær mínútur eftir. Þegar 80 sekúndur voru eftir hófst ævintýralegur kafli þar sem Threatt hitti úr þremur vítum af fjórum á tveimur sekúndum. Stólarnir fengu boltann en Valentine skrefaði áður en hann komst fram fyrir miðju en Snæfellingar svöruðu í sömu mynt, Tindastóll fékk boltann og þegar 47 sekúndur voru eftir jók Gibson muninn í sex stig af vítalínunni og staðan 80-74. Valentine var ekki í stuði og hann náði að brjóta á Threatt um leið og boltinn kom í leik, fékk þar með sína fimmtu villu og Snæfell gott færi til að minnka muninn án þess að sekúndunum fækkaði á klukkunni. Threatt setti fyrra vítið niður en það seinna klikkaði en gestirnir náðu frákastinu og Sigurður Þorvalds setti þrist niður í flýti og staðan 80-78 og enn voru 40 sekúndur eftir.

Nú fór að fara um stuðningsmenn Tindastóls sem héldu að sigurinn hefði verið í höfn 15 sekúndum áður. Brotið var á Helga Rafni um leið og Stólarnir tóku boltann inn og hann var nokkuð æstur á vítalínunni og klikkaði á báðum skotum sínum. Snæfell skaust í sókn og áttu skot sem klikkaði en Amaroso hirti frákastið og var við það að skora þegar Helgi Margeirs braut á honum. Amaroso hitti úr fyrra skotinu en tókst ekki að jafna úr því síðara og enn var brotið á Helga Rafni sem varð nú að fara aftur á vítalínuna þegar sjö sekúndur voru eftir. Kappinn vætti kverkarnar og girti sig í brók og setti fyrra vítið niður. Sennilega var hann farinn að hugsa um vörnina áður en hann tók það seinna því það geigaði og gestirnir geystust fram, skot frá Threatt skoppaði af hringnum, Pálmi Sigurgeirs náði boltanum og hans skot klikkaði líka um leið og flautan gall. Lokatölur 81-79.

Frábær sigur á Snæfelli staðreynd þrátt fyrir að lykilmenn á borð við Valentine og Þröst Leó hefðu ekki verið að sýna sitt rétta andlit. Helgi Rafn var osom í kvöld í vörn og sókn og þá steig Tarick Johnson upp og var ólseigur þó að á stundum hafi hann viljað klára allt sjálfur. Varnarleikurinn var magnaður í síðari hálfleik og skilaði tveimur mikilvægum stigum í hús. Þrátt fyrir að hafa náð í stigin þá komust Stólarnir ekki upp fyrir Skallagrímsmenn í áttunda sætið en Borgnesingar sýndu í kvöld að þeir væru ekki dauðir úr öllum æðum með því að sigra lið Keflavíkur. Næsta föstudag fara Tindastólsmenn til Þorlákshafnar til að eiga við Þórsara – áfram Tindastóll!

Stig Tindastóls: Helgi Rafn 23, Tarick Johnson 22, George Valentine, 12 / 11 frk., Drew Gibson 8, Helgi Margeirs 5, Svabbi 5, Hreinsi 5 og Þröstur Leó 2.

Fleiri fréttir