Hross féll í haughús
Flugbjörgunarsveitin í Varmahlíð var kölluð út í morgun vegna hests sem fallið hafði í haughús á sveitabæ í Skagafirði. Á vef Landsbjargar segir að hrossið hefði svamlað um haughúsið í um klukkustund þegar björgunarsveitin mætti með dælur. Dýptin á haughúsinu er um þrír metrar.
Dælt var upp úr þrónni með haugsugu og því næst var böndum komið á skepnuna og hún hífð á þurrt.