Hryllings flautukarfa Fjölnismanna tryggði þeim sigur á lánlausum Tindastólsmönnum

Tindastólsmenn léku við Fjölni í Grafarvoginum í gær og voru að gera ágæta hluti. Fjölnismenn byrjuðu betur en jafnt var í hálfleik. Ef eitthvað var þá höfðu Stólarnir yfirhöndina í síðari hálfleik, náðu mest 7 stiga forystu, en lukkan var ekki í liði með okkur í lokin þegar Tómas Heiðar Tómasson skoraði með 3ja stiga skoti á síðustu sekúndu leiksins. Lokatölur 75-72 fyrir Fjölni.

Í viðtali við Bárð Eyþórsson þjálfara Tindastóls kemur fram að honum hafi fundist spilamennska Stólanna átt að færa liðinu 2 stig, en varnarleikur liðsins var góður í gærkvöldi.  „Einhverra hluta vegna náum við ekki að klára leikina.  Mér finnst varnarleikurinn það sem af er móti yfir höfuð hafa verið ágætur, við höfum verið að klúðra svolítið sóknarlega séð, verið að fá á okkur auðveld stig úr hraðaupphlaupum.  En við erum að ná að loka því.  Okkur vantar aðeins í liðið en við erum bara að vinna í því.“

Síðari hálfleikur var æsispennandi, Stólarnir komust sem fyrr segir í sjö stiga forystu þegar um 3 mínútur voru eftir af þriðja fjórðungi. Heimamenn gerðu hins vegar næstu 8 stig og voru yfir 59-58 þegar síðasti leikhlutinn hófst. Stólarnir voru síðan yfir mest allan fjórðunginn, náðu mest fjögurra stiga forystu, 63-67, en spennan var yfirgengileg í lokin. Svona segir Karfan.is frá loka mínútum leiksins: „Þegar tvær og hálf mínúta var eftir af leiknum var Tindastóll þremur stigum yfir 68-71.  Fjölnismenn voru sendir á línuna við hvert tækifærr og ljóst að Tindastóll ætlaði ekki að gefa þeim neitt.  Það reyndist góð ákvörðun því heimamenn voru ekki að fara vel með vítaskotin sín á lokakaflanum en bæði Spicer og Árni klikkuðu á öðru af tveimur skotunum.  Jón Sverrisson jafnaði þó leikinn fyrir Fjölni þegar rétt rúmlega ein mínúta var eftir með laglegu up and under sniðskoti, 71-71.  Fjölnismenn misnotuðu tækifæri til þess að komast yfir þegar um það bil hálf mínúta var eftir af leiknum og Tindastóll brunaði í sókn.  Þeir voru hársbreidd frá því að missa frá sér boltann þegar 16 sekúndur voru eftir en dómararnir dæmdu uppkast og Tindastóll átti boltann.  Tindastólsmenn reyndu einhverra hluta vegna að gefa viðstöðulausa alley oop sendingu á George Valentine sem Árni Ragnarsson komst inn í, honum tókst svo líka að verja sniðskot Friðriks Hreinssonar sekúndu seinna.  Fjölnismenn fóru því í sókn og Árni fékk boltann undir körfunni, þar var brotið á honum þar sem hann nýtti seinna skotið, 72-71 og Bárður tók leikhlé fyrir Tindastól með 3 sekúndur á klukkunni.  George Valentine fékk þá boltann efst í teignum, keyrði á körfuna og var sendur á línuna.  Þar tókst honum aðeins að setja seinna vítið og með 1,1 sekúndur eftir á klukkunni tóku Fjölnismenn því leiklé, staðan 72-72.  Þeir settu upp kerfi fyrir Tómas Tómasson sem gekk svo fullkomnlega upp að boltinn söng í netinu við mikinn fögnuð heimamanna.  Tómas fékk því allt Fjölnisliðið og gott betur í hrúgu ofaná sig eftir að hafa tryggt heimamönnum tvö mikilvæg stig.“

Stólarnir hafa nú tapað fjórum fyrstu leikjunum í Dominos-deildinni og er þessi árlega haustdepurð liðsins að verða ansi hvimleið. En Bárður er bjartsýnn á framhaldið: „Mér fannst við spila mjög vel í leiknum, vorum að gera nákvæmlega það sem höfum verið að reyna að gera í hinum leikjunum.  Það tókst mjög vel í kvöld.  Þetta er eitthvað sem við viljum byggja á.  Þó við höfum tapað þessum leik þá viljum við líta á jákvæðu hlutina í þessum leik,“ sagði Bárður í samtali við Körfuna.is.

Stig Tindastóls: Valentine 23, Helgi Freyr 15, Miles 8, Arnar 7, Rikki 6, Helgi Rafn 6, Hreinsi 4 og Þröstur Leó 3.

Áhugasamir geta horft á lokasekúndur leiksins í boði SportTV með því að smella á linkinn hér að neðan. Hörðum Tindastólsmönnum er bent á að hafa ælupokann innan seilingar.

http://www.sporttv.is/Alltefnid/Efni/574

Fleiri fréttir