HS er gert að skera meira niður en sambærilegar stofnanir annað árið í röð
Sveitarfélagið Skagafjörður fékk Capacent til að vinna greinargerð um fyrirhugaðar fjárveitingar til Heilbrigðisstofnunarinnar Sauðárkróki (HS) samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2013. Greinargerðin tekur saman meginniðurstöður greiningar og mats sem fólst í því að kanna hvort heilbrigðisþjónusta á upptökusvæði HS væri gert að skera meira niður en önnur sambærileg svæði og ef svo væri hvort á því gætu verið efnislegar skýringar.
Á vef Svf. Skagafjarðar segir að úttektin sé framhald af greinargerð Capacent frá nóvember 2011 þar sem rýnt var í fjárveitingar til heilbrigðisþjónustu á milli nokkurra svæða. Verkefnið frá fyrra ári var einnig unnið fyrir Sveitarfélagið Skagafjörð. Niðurstaða þeirrar úttektarinnar leiddi í ljós að óútskýrður munur væri á milli fjárveitinga til heilbrigðisstofnunarinnar Sauðárkróki og annarra svæða.
Greining og mat á fjárveitingum leiðir fram að ekki verður annað séð, eftir því sem segir á vefnum, en að HS sé gert að skera meira niður en stofnanir með upptökusvæði sem telja verður í öllum meginatriðum sambærileg og hafi því minni fjárveitingar en aðrir til að veita sambærilega þjónustu. Nokkuð dregur úr niðurskurðarkröfu almennt fyrir næsta ár miðað við árin á undan en ljóst er að HS er gert að skera meira niður en önnur svæði annað árið í röð og í þriðja sinn á fimm árum.