Huggulegar haustlaufaskreytingar
Litadýrðin og fegurðin í náttúrunni á haustin getur gert Fröken Fabjúlöss orðlausa, angurværa og jafnvel stundum hreinlega bara væmna. Fjallshlíðarnar skarta sínum fegurstu litum og haustlaufin liggja í litríkum haugum niðri í Litla-Skóg, bíðandi eftir því að uppfylla nýtt hlutverk sem stofustáss hjá einhverri Skagfirskri snótinni.
Hægt er að gera allskonar fallegar skreytingar úr haustlaufum. Reyndar eru laufin sem finnast hérna á Íslandi yfirleitt ekki jafn stór og fjölbreytileg og hægt er að finna í löndum eins og Ameríku og á norðurlöndunum, en margt fallegt er hægt að gera úr Íslensku haustlaufunum. Best er að byrja á því að þurrka þau í allavega viku áður en farið er að vinna með þau, góð aðferð til að gera það er að raða þeim inn í bók- eitt til tvö lauf á hverja blaðsíðu, loka svo bókinni og smella henni undir dýnuna á rúminu, svoleiðis pressast þau og þurrkast án nokkurrar fyrirhafnar. Frk Fab fór í smá heimildaöflun um hvernig nota megi haustlaufin í skreytingar og fann aragrúa sem hægt er að gera á einfaldann og fljótlegann hátt.