Húnaþing vestra aðili að samkomulagi við Klappir Development
Á sveitarstjórnarfundi Húnaþings vestra samþykkti á sveitarstjórn að gerast aðili að samkomulagi sveitarfélaganna í Austur-Húnavatnssýslu og Klappa Development ehf. Jafnframt var á fundinum lögð fram bókun um atvinnuuppbyggingu á Norðurlandi vestra.
Bókunin sveitarstjórnar hljóðar svo:
Sveitarstjórn Húnaþings vestra fagnar umræðu um stöðu atvinnumála á Norðurlandi vestra sem fram hefur farið undanfarnar vikur. Ljóst er að viðvarandi fólksfækkun í landshlutanum verður ekki snúið við nema með stórtækum aðgerðum og þéttri samvinnu ríkisins sem og sveitarfélaga á svæðinu. Ýmislegt hefur verið reynt á umliðnum árum.
Sveitarfélögin hafa reynt að laða til sín fyrirtæki og fjárfestingar hvert á sínum svæðum, hinar ýmsu nefndir hafa starfað með misjöfnum árangri, heimamenn hafa hrint af stað hinum ýmsu verkefnum o.m.fl. Þrátt fyrir þá vinnu sem fram hefur farið er staðan sú að störfum heldur áfram að fækka í landshlutanum, fólksfækkun er viðvarandi, framlög frá ríki til hinna ýmsu málaflokka dragast verulega saman, svo sem til Uppbyggingarsjóðs, samgöngumála, heilbrigðismála, löggæslu o.fl.
Í fundargerðinni segir einnig að erlendir fjárfestar hafi nú sýnt áhuga á uppbyggingu stóriðju í Austur-Húnavatnssýslu. Þeir hafi undirritað viljayfirlýsingu við Klappir Development ehf um fjármögnun verkefnisins að hluta og nú fari fram vinna við athuganir á fýsileika verkefnisins, auk viðbótarfjármögnunar.
Í fundargerðinni var bókuð svohljóðandi viljayfirlýsing:
Viljayfirlýsing þessi kemur í kjölfar samkomulags sem sveitarfélögin í A-Hún og Klappir Development ehf undirrituðu fyrr á árinu um undirbúning mögulegrar álframleiðslu og úrvinnsluiðnaðar á iðnaðarsvæðinu við Hafursstaði. Í framhaldinu hefur sveitarfélögum í Skagafirði og Húnaþingi vestra boðist að gerast aðilar að verkefninu þar sem ætlað er að uppbygging í miðju landshlutans muni hafa jákvæð áhrif í landshlutanum öllum.
Á fundinum var jafnframt samþykkt eftirfarandi tillaga:
Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkir að gerast aðili að samkomulagi sveitarfélaganna í A-Hún. og Klappa Development ehf. um undirbúning mögulegrar álframleiðslu og úrvinnsluiðnaðar í A-Hún. sem gildir til. 31. desember 2015.
Í tillögunni segir:
Þar til samkomulagið rennur út skuli fara fram greining á áhrifum stóriðju á landshlutann allan, þar með talið jaðarsvæða hans sem Húnaþing vestra hlýtur að teljast til. Einnig fari á tímabilinu fram kynning á verkefninu meðal íbúa sveitarfélagsins. Að þeim gögnum fyrirliggjandi auk íbúakönnunar verði tekin ákvörðun um hvort og þá með hvaða hætti Húnaþing vestra yrði þátttakandi í verkefninu fari svo að áform um byggingu álvers við Hafursstaði verði að veruleika. Oddvita er falið að vinna málið áfram og veitt umboð til undirritunar viðauka við fyrrgreint samkomulag.