Hunda- og kattahreinsun í Furukoti
Hunda- og kattahreinsun fer fram fer fram í Furukoti (við Sæmundarhlíð á Sauðárkróki) í dag, fimmtudaginn 6. desember. Samkvæmt auglýsingu í Sjónhorninu fer kattahreinsunin fram á milli kl. 16 til 17 en hundahreinsunin á milli kl. 17 og 18.
Hunda- og kattaeigendur á Hofsósi eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við dýralæknir, óski þeir eftir hreinsun.
„Eigendur eru beðnir að hafa með sér kvittun hafi þeir greitt leyfisgjald ársins 2012,“ segir loks í auglýsingu.